Atvinna / Vinnulitlir


Stutt lýsing

Hlutfall fólks sem er í hlutastörfum en vill vinna meira af starfandi fólki.


Nánari skýring

Með vinnulitlum er átt við hlutfall fólks sem er í hlutastörfum en vill vinna meira af starfandi fólki. Starfandi telst hver sá sem vann a.m.k. eina klst. í viðmiðunarvikunni eða var fjarverandi frá vinnu sem hann er að öllu jöfnu ráðinn til.

Niðurstöðurnar byggja á vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Rannsóknin er hluti af samstarfi ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu um vinnumarkaðstölfræði og byggist á alþjóðlegum stöðlum og skilgreiningum. Í úrtak vinnumarkaðsrannsóknarinnar veljast af handahófi íslenskir og erlendir ríkisborgarar á aldrinum 16–74 ára sem skráðir eru í þjóðskrá og eiga lögheimili á Íslandi.


Eining

Hlutfall í %.


Nánari upplýsingar

Hér eru aðeins birtar lykiltölur um vinnulitla. Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflum á aðalvef Hagstofu Íslands:

Vinnulitlir eftir kyni, aldri og landsvæðum

Árstölur

Ársfjórðungstölur

Lýsigögn með nánari upplýsingum um vinnumarkaðsrannsókn má finna hér.