Fjárhagur / Verulegur skortur á efnislegum gæðum


Stutt lýsing

Hlutfall heimila sem býr við verulegan skort á efnislegum gæðum eftir stöðu á húsnæðismarkaði.


Nánari skýring

Fólk telst búa við verulegan skort á efnislegum gæðum ef það býr á heimili þar sem fernt eða meira af eftirfarandi á við:

  1. Hefur lent í vanskilum húsnæðislána eða annarra lána vegna fjárskorts á síðastliðnum 12 mánuðum

  2. Hefur ekki efni á að fara árlega í vikulangt frí með fjölskyldunni

  3. Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð að minnsta kosti annan hvern dag

  4. Getur ekki mætt óvæntum útgjöldum (sem voru að upphæð 180 þúsund krónur árið 2018)

  5. Hefur hvorki efni á heimasíma né farsíma

  6. Hefur ekki efni á sjónvarpstæki

  7. Hefur ekki efni á þvottavél

  8. Hefur ekki efni á bíl

  9. Hefur ekki efni á að halda húsnæðinu nægjanlega heitu

Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Grunneining rannsóknarinnar er heimili fremur en einstaklingar. Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra. Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann allar upplýsingar um aðstæður heimilis, sínar eigin og allra annarra heimilismeðlima. Hér er greiningin miðuð við einstaklinga, og gert er ráð fyrir því að aðstæður heimilisins eigi við um alla einstaklinga á heimilinu.

Um tölurnar

Samhliða birtingu á niðurstöðum fyrir árin 2015-2018, hafa eldri niðurstöður verið endurskoðar. Við endurskoðun kom í ljós brot í tímaröð vegna orðalagsbreytinga í spurningunni um vikulangt frí, sem hefur í för með sér að mælingarnar eru ekki sambærilegar á milli ára. Hér er aðeins birt nýjasta tímaröðin þar sem tölurnar eru sambærilegar á milli ára. Samhliða birtingu á niðurstöðum fyrir árin 2019-2021 hafa eldri niðurstöður verið uppfærðar vegna lagfæringar á kóðun svarkosta. Tölurnar frá 2019-2021 eru bráðabirgðatölur.


Eining

Hlutfall í %.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflum á aðalvef Hagstofu Íslands.

Skortur á efnislegum gæðum

Lýsigögn með nánari upplýsingum má finna hér.