Húsnæði / Lélegt ástand húsnæðis


Stutt lýsing

Hlutfall fólks sem segist búa við raka, myglu, og lekandi þak eftir tegund húsnæðis.


Nánari skýring

Spurt er hvort svarandi eigi í vandræðum með þakleka, raka eða fúa í veggjum, gólfi eða gluggum. Sé svarað játandi telst viðkomandi til þeirra sem segjast búa við lekandi þak, raka eða myglu.

Um tölurnar

Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Grunneining rannsóknarinnar er heimili fremur en einstaklingar. Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra. Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann allar upplýsingar um aðstæður heimilis, sínar eigin og allra annarra heimilismeðlima. Hér er greiningin miðuð við einstaklinga og gert er ráð fyrir því að aðstæður heimilisins eigi við um alla einstaklinga á heimilinu.

Tölurnar frá 2019-2021 eru bráðabirgðatölur.


Eining

Hlutfall í %.


Nánari upplýsingar

Hér eru aðeins birtar lykiltölur um hvort fólk segist búa við húsnæði í lélegu ástandi.

Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflum undir “Húsnæðismál” á aðalvef Hagstofu Íslands. Unnið er að uppfærslu á talnaefni.

Lýsigögn með nánari upplýsingum má finna hér.