Húsnæði / Þröngbýli
Stutt lýsing
Hlutfall fólks sem býr þröngt reiknað út frá fjölda herbergja og samsetningu heimilisfólks.
Nánari skýring
Notast er við alþjóðlega skilgreiningu evrópsku Hagstofunnar á þröngbýli. Þröngbýli er reiknað út frá fjölda herbergja og samsetningu heimilisfólks.
-
Hvert heimili þarf eitt herbergi sem er sameiginlegt fyrir allt heimilisfólk
-
Eitt herbergi fyrir hvert par á heimilinu
-
Eitt herbergi fyrir hvern einhleypan einstakling 18 ára og eldri
-
Eitt herbergi fyrir hverja tvo einstaklinga 12-17 ára af sama kyni
-
Eitt herbergi fyrir hverja tvo einstaklinga undir 12 ára aldri
Um tölurnar
Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Grunneining rannsóknarinnar er heimili fremur en einstaklingar. Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra. Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann allar upplýsingar um aðstæður heimilis, sínar eigin og allra annarra heimilismeðlima. Hér er greiningin miðuð við einstaklinga, og gert er ráð fyrir því að aðstæður heimilisins eigi við um alla einstaklinga á heimilinu.
Tölurnar frá 2019-2021 eru bráðabirgðatölur.
Eining
Hlutfall í %.
Nánari upplýsingar
Hér eru aðeins birtar lykiltölur um þröngbýli.
Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflum undir “Húsnæðismál - húsnæðiskostnaður” á aðalvef Hagstofu Íslands. Unnið er að uppfærslu á talnaefni.
Lýsigögn með nánari upplýsingum má finna hér.