Húsnæði / Mat á byrði húsnæðiskostnaðar


Stutt lýsing

Hlutfall fólks sem segir að húsnæðiskostnaður sé mikil byrði eftir stöðu á húsnæðismarkaði.


Nánari skýring

Hlutfallið tekur mið af þeim sem svara því til að húsnæðiskostnaður sé þung byrði. Fólk er beðið að hafa í huga heildarkostnað húsnæðis, þ.m.t. afborganir af húsnæðislánum eða húsaleigu, tryggingar, þjónustugjöld s.s. sorphirða, reglulegt viðhald, viðgerðir og önnur gjöld.

Um tölurnar

Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Grunneining rannsóknarinnar er heimili fremur en einstaklingar. Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra. Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann allar upplýsingar um aðstæður heimilis, sínar eigin og allra annarra heimilismeðlima. Hér er greiningin miðuð við einstaklinga, og gert er ráð fyrir því að aðstæður heimilisins eigi við um alla einstaklinga á heimilinu.

Tölurnar frá 2019-2021 eru bráðabirgðatölur.


Eining

Hlutfall í %.


Nánari upplýsingar

Hér eru aðeins birtar lykiltölur um fólk sem segir að húsnæðiskostnaður sé þung byrði. Nánari upplýsingar eru í eftirfarandi töflum á aðalvef Hagstofu Íslands.

Mat á byrði húsnæðiskostnaðar

Lýsigögn með nánari upplýsingum má finna hér.